top of page

 P O L E S T A R 
Lögmannsstofa

Ráðgjöf • Málflutningur • Rannsóknir

Málaflokkar

Sérþekking okkar liggur í umhverfinu, hafinu og alþjóðlegri samvinnu
Image by André Filipe

Umhverfismál

Stofan veitir alhliða ráðgjöf á sviði umhverfismála og annast málflutning fyrir ólíka hagsmunaaðila fyrir kæru- og úrskurðarnefndum og dómstólum.

Outdoor%20pool%20in%20the%20mountains_edited.jpg

Skipulags- og byggingamál

Stofan veitir fjölbreytta þjónustu á sviði skipulags- og byggingarmála, bæði gagnvart skipulagsáætlunum og mannvirkjagerð. Stofan býður sáttamiðlun vegna ágreinings við nágranna eða fulltrúa hins opinbera.

Image by Andrzej Kryszpiniuk

Málefni hafsins

Stofan býr yfir mikilli og sérhæfðri þekkingu á hafrétti og annast fjölbreytta raðgjöf, hagsmunagæslu og rannsóknir á sviði hafréttar.

Image by Matthew TenBruggencate

Þjóðaréttur

Stofan býr yfir mikilli þekkingu á almennum þjóðarétti og annast fjölbreytt verkefni sem snúa að alþjóðlegum skuldbindingum milli ólíkra ríkja og úrlausn alþjóðlegra deilumála.

Image by Luke Stackpoole

Sjálfbærni

Regluverk á sviði sjálfbærni getur verið flókið og mikið magn nýrra og stundum ófyrirsjáanlegra reglna eru innleiddar í landsrétt í gegnum EES-samninginn. Stofan veitir fyrirtækjum alhliða þjónustu vegna fjölbreyttra áskorana á sjálfbærnivegferð þeirra.

Image by Priscilla Du Preez 🇨🇦

Mannréttindi

Stofan annast hagsmunagæslu í tengslum við mannréttindi einstaklinga og fyrirtækja, svo sem vegna mismununar á ólíkum grundvelli, ráðgjöf til opinberra aðila og hagsmunasamtaka vegna alþjóðlegra skuldbindinga og ráðgjöf til fyrirtækja vegna mannréttinda í virðiskeðjum.

Þjónustan

Fjölbreyttar leiðir í átt að árangri

Image by Dave Herring

Ráðgjöf

Lögmannsstofan veitir alla almenna lögfræðilega ráðgjöf til einstaklinga, fyrirtækja, hagsmunasamtaka, stofnana og opinberra aðila og býr yfir yfirgripsmikilli ráðgjafarreynslu á sviði löggjafar og stefnumótunar.

Sáttamiðlun

Sáttamiðlun er skjót, einföld og hagkvæm leið til að leysa ágreiningsmál. Sáttamiðlari er hlutlaus og óhlutdrægur aðili sem aðstoðar deiluaðila við að skilja stöðu sína, þarfir og sameiginlega hagsmuni svo þeir geti komist að sameiginlegri niðurstöðu með samkomulagi. Með sáttamiðlun má komast hjá langdregnum og kostnaðarsömum dómsmálum.

Málflutningur

Lögmannsstofan býr yfir mikilli reynslu af málflutningi fyrir dómstólum, gerðardómum, kæru- og úrskurðarnefndum og öðrum stjórnvöldum. Málflutningur til úrlausnar ágreiningsmálum er í okkar huga þrautarvaraúrræði sem má beita þegar önnur og einfaldari úrræði duga ekki, svo sem samningaviðræður og/eða sáttamiðlun. Lögmannsstofan leggur sig fram við að leysa úr málum með hagkvæmum og skjótvirkum leiðum.

Rannsóknir og álitsgerðir

Lögfræðingar stofunnar hafa umfangsmikla reynslu í akademískum rannsóknum í lögfræði og vinna reglulega ítarlegar greiningar og álitsgerðir fyrir ólíka aðila, innanlands og erlendis. 

Þjónustan

Teymið

Teymi lögmannsstofunnar geymir einhverja helstu sérfræðinga landsins á sérsviði stofunnar.  Teymið býr yfir umfangsmikilli reynslu á sviði ráðgjafar, hagsmunagæslu, rannsókna og þekkingarmiðlunar.

20200307-IMG_3334_edited_edited_edited.j

Ingi B. Poulsen

Lögfræðingur og ráðgjafi

SNJÓLAUG_2025(1bw)-2.jpg

Dr. Snjólaug Árnadóttir

Lögfræðingur og ráðgjafi

Bjarni.jpg

Dr. Bjarni Már Magnússon

Lögmaður

Hafðu samband

Sími: 5716670

Takk fyrir fyrirspurnina! Við svörum þér við fyrsta tækifæri.

POLESTAR Legal

Sími: 5716670

Hlíðarhjalli 70

200 Kópavogur

Ísland

 

©2021 by Polestar Legal ehf.

bottom of page