top of page
Image by Andrzej Kryszpiniuk

Málefni hafsins

Lögmannsstofan býr yfir yfirgripsmikla sérþekkingu á hafrétti. Starfsmenn stofunnar geta veitt ráðgjöf um fjölbreytt svið er snerta hafið, þar á meðal afmörkun hafsvæða milli nágrannaríkja, veiðar á úthafinu, svæðisbundna fiskveiðisamninga og -stofnanir, hvalveiðar, valdheimildir strandríkja á mismunandi hafsvæðum og löggæsluaðgerðum gegn skipum. Stofan hefur auk þess víðtæka reynslu af málefnum er varða réttarstöðu landgrunnsins. Við veitum einnig ráðgjöf um skýringu og beitingu hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna, meðal annars um úrlsausn deilumála. Ennfremur veitir stofan lögfræðiráðgjöf um áhrif loftslagsbreytinga á hafið, svo sem hækkandi sjávarstöðu, breytingar á hafsvæðum ríkja og þróun réttarreglna um verndun hafsins

Dæmi um mál

Afmörkun hafsvæða

Við höfum mikla reynslu af sérhæfðri aðstoð við afmörkun hafsvæða milli ríkja og álitaefnum sem þeim tengjast. Við veitum ráðgjöf vegna verndarsvæða í hafi

Auðlindanýting á hafinu

Við veitum ráðgjöf um nýtingu auðlinda á hafsbotni og í hafinu.

Lagaleg álitaefni um fiskveiðar

Við veitum ráðgjöf um marvísleg málefni tengd sjávarútvegi hvort sem er í íslenskri lögsögu, í lögsögu erlendra ríkja eða á alþjóðlegum hafsvæðum. Auk þess sem við aðstoðum við túlkun alþjóðasamninga tengdum fiskveiðum sem og úrlausn ágreiningamála.

Loftslagsverkfræði á hafinu

Við veitum sérhæfða ráðgjöf um loftslagsverkfræði á hafinu, þar á meðal heimildir, leyfisveitingar, alþjóðlegar skuldbindingar og áhættumat vegna kolefnisminnkandi verkefna.

Dr. Snjólaug Árnadóttir

Sími: 6959723

Netfang: snjolaug@polestarlegal.is

  • LinkedIn
SNJÓLAUG_2025(1bw)-2.jpg

Dr. Bjarni Már Magnússon

Sími: 6632856

Netfang: bjarni@polestarlegal.is

  • LinkedIn
Bjarni.jpg

POLESTAR Legal

Sími: 5716670

Hlíðarhjalli 70

200 Kópavogur

Ísland

 

©2021 by Polestar Legal ehf.

bottom of page