top of page

Skipulags- og byggingamál

Lögmannsstofan sérhæfir sig í málum sem varða skipulagsáætlanir og mannvirkjagerð. Stofan veitir ráðgjöf varðandi undirbúning byggingaráforma, útgáfu framkvæmda- og byggingarleyfa, gerð skipulagsáætlana og úrlausn ágreiningsmála við opinbera aðila, lóðarhafa, nágranna og aðra hagaðila.

Dæmi um mál

Skipulagsáætlanir

Stofan veitir þjónustu vegna skipulagsáætlana, svo sem í tengslum við málsmeðferð við breytingar á deiliskipulagi eða gerð nýs skipulags, álitaefna í tengslum við áhrif deiliskipulags á hagsmunaaðila og hvort framkvæmdir séu í samræmi við gildandi deiliskipulag.

Leyfisveitingar

Stofan býður víðtæka þjónustu í tengslum við mannvirkjagerð og framkvæmdir, svo sem vegna útgáfu á framkvæmda- og byggingarleyfi, útgáfu byggingarleyfa vegna þegar gerðra framkvæmda, túlkunar á lögum og reglum í tengslum við mannvirkjagerð, til dæmis byggingarreglugerð, dagsektir o.fl.

Eignarnám

Stofan sinnir verkefnum í tengslum við eignarnám vegna skipulagsáætlana eða framkvæmda, til dæmis við lagningu vega eða virkjanaframkvæmda. Stofan annast samningsgerð og málarekstur í tengslum við fyrirhugað eignarnám.

Úrlausn árgreinings

Stofan annast öll ágreiningsmál á sviðinu, svo sem með því að reka kærumál fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, sáttamiðlun í deilum ólíkra hagsmunaaðila, samskipti við sveitarfélög, svo sem byggingarfulltrúa og rekstur dómsmála.

Ingi Poulsen

Sími: 6998780

Netfang: ingi@polestarlegal.is

  • LinkedIn
20200307-IMG_3334_edited_edited_edited.jpg

POLESTAR Legal

Sími: 5716670

Hlíðarhjalli 70

200 Kópavogur

Ísland

 

©2021 by Polestar Legal ehf.

bottom of page