top of page

Explore our services and get in touch

Our Services

  • 01.

    Skipulags- og byggingarmál

    Lögmannsstofan sérhæfir sig í málum sem varða skipulagsáætlanir og mannvirkjagerð. Stofan veitir ráðgjöf varðandi undirbúning byggingaráforma, útgáfu framkvæmda- og byggingarleyfa, gerð skipulagsáætlana og úrlausn ágreiningsmála við opinbera aðila, lóðarhafa, nágranna og aðra hagaðila.

  • 02.

    Umhverfismál

    Lögmannsstofan sérhæfir sig í málum á sviði umhverfisréttar, svo sem vegna náttúruverndar, mengunarvarna, umhverfistjóns og -ábyrgðar, umhverfismats áætlana og framkvæmda. Þá sinnir stofan málum á sviði upplýsingaréttar og þátttökuréttinda í tengslum við ákvarðanir sem varða umhverfið. Stofan hefur mikla þekkingu á sviði loftslagsréttar, bæði hvað varðar innlenda löggjöf og alþjóðlegar skuldbindingar sem snerta bæði stjórnvöld og fyrirtæki.

  • 03.

    Málefni hafsins

    Lögmannsstofan býr yfir yfirgripsmikla sérþekkingu á hafrétti, sem er sérsvið innan þjóðaréttar. Starfsmenn stofunnar geta veitt ráðgjöf um fjölbreytt svið er snerta hafið, þar á meðal afmörkun hafsvæða milli nágrannaríkja, veiðar á úthafinu, svæðisbundna fiskveiðisamninga og -stofnanir, hvalveiðar, valdheimildir strandríkja á mismunandi hafsvæðum og og löggæsluaðgerðum gegn skipum. Stofan hefur auk þess víðtæka reynslu af málefnum er varða réttarstöðu landgrunnsins. Við veitum einnig ráðgjöf um

  • 04.

    Þjóðaréttur

    Lögmannsstofan sérhæfir sig í þjóðarétti (eða alþjóðalögum), þ.e. réttarskipaninni sem gildir í samskiptum fullvalda ríkja og annarra alþjóðlegra aðila s.s. alþjóðastofnana. Sérfræðingar stofunnar veita ráðgjöf og þjónustu á breiðu sviði þjóðaréttar, þar á meðal úrlausn alþjóðlegra deilumála, úrlendisrétt, túlkun og beiting milliríkjasamning, alþjóðlegar þvingunaraðgerðir og beitingu vopnavalds. Stofan hefur djúpa þekkingu á Vínarsamningnum um milliríkjasamninga frá 1969.

  • 05.

    Mannréttindi

  • 06.

    Sjálfbærni

POLESTAR Legal

Sími: 5716670

Hlíðarhjalli 70

200 Kópavogur

Ísland

 

©2021 by Polestar Legal ehf.

bottom of page